EXEDRA - vettvangur umræðna

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Flýtilyklar

EXEDRA er vettvangur umræðna fyrir fjölbreyttan hóp kvenna úr öllu atvinnulífinu. Konurnar í Exedra eru margar sérfræðingar á ýmsum sviðum og þær koma jafnt úr opinbera geiranum sem einkageiranum, t.a.m. úr viðskiptum, öllum stjórnmálaflokkum, fjölmiðlum, menntamálum, heilbrigðismálum og listalífinu.

Tilgangur

Tilgangur Exedra er að stuðla að málefnalegri umræðu og auknum tengslum milli atvinnulífs, stjórnmála og fjölmiðla. Exedra er hlutlaus vettvangur þar sem áhersla er lögð á trúnað um allt sem fram kemur á fundunum til að hægt sé að ræða málin opinskátt og af einlægni.

Með því að kalla saman konur úr fremstu röð í öllu atvinnulífinu og gefa þeim tækifæri á að kynna sér málin, velta hlutunum fyrir sér og taka málefnalega afstöðu, eykst skilningur milli stjórnmála, fjölmiðla og atvinnulífsins alls - tengslin styrkjast og samvinnan eykst. Öll umræða verður málefnalegri og meiri samstaða næst um ákvarðanatöku. Áhrif kvenna aukast!

Exedra var stofnað á kvennafrídeginum þann 24. október árið 2006.

Þrjátíu og einu ári áður, á kvennafrídeginum 1975, stóðu Sigurlaug Bjarnadóttir og Svava Jakobsdóttir á útifundi á Lækjartorgi og fluttu alþingismannahvatningu. Þær ásamt Ragnhildi Helgadóttur voru einu þingkonur landsins.

Þar mælti Sigurlaug:
„Við höfum of lengi haldið að okkur höndum. Við trúum því, að heimili okkar og fjölskyldum - þjóðinni allri - væri betur borgið, ef konur hefðu meiri áhrif á lagasetningu og pólitískar ákvarðanir, að móta það samfélag, sem við lifum í.Við þurfum að kynna okkur málin - hugsa - taka afstöðu og beita áhrifum okkar samkvæmt því.Við höfum allar - hvar í stétt sem við stöndum - í sveit og við sjó - möguleika - og skyldur til að hafa áhrif á umhverfi okkar með fordæmi - orðum og athöfnum."

Í þessum orðum kristallast tilgangur Exedra.

Mikilvæg viðfangsefni

Exedra leitast eftir að taka fyrir mikilvæg viðfangsefni. Á fundum Exedra hefur m.a. verið rætt um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum og leiðir til úrbóta, samspil atvinnulífs og skólakerfis, ímynd Íslands, framtíðarsýn í Evrópumálum og í heilbrigðismálum, fjallað hefur verið um konur í stríðshrjáðum löndum, farið á hugarflug með körlum, fjallað um efnahagslífið, rætt um menningargildi Íslendinga og grunngildi þjóðarinnar í samfélaginu, í starfi og heima fyrir.

Hópurinn hefur einnig horft á hina stórkostlegu mynd Alexander og í framhaldinu fjallað um málefni og menntun fatlaðra barna, horft á Sólskinsdrenginn og fjallað um einhverfu, farið á leikritið Ást og fjallað um málefni eldri borgara, farið til Akureyrar og fjallað um málefni landsbyggðarinnar, farið til London og fengið kynningu á starfsemi íslenskra fyrirtækja á erlendri grundu, farið til Suður Frakklands þar sem hópurinn fór m.a. í stjórnendaþjálfun og áfram mætti telja.

Góðgerðarverkefni 

Eitt af hlutverkum Exedra er að láta gott af sér leiða til samfélagsins og til þess að stýra þeirri vinnu var stofnaður góðgerðarhópur. Exedra náði góðum árangri er hópurinn tók þátt í að halda SUK góðgerðarmarkað í Perlunni árið 2008 með Jóhönnu Kristjónsdóttur í broddi fylkingar, þar sem allur ágóði rann til uppbyggingar skóla fyrir börn og konur í Jemen.

Hvatningarátakið Til fyrirmyndar 

Þessa dagana er EXEDRA að vinna að hvatningarátaki sem ber yfirskriftina Til fyrirmyndar.

Með átakinu, sem er  tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni, eru landsmenn hvattir til að gefa sér tíma til að staldra við og huga að því sem vel er gert, jafnt stóru sem smáu. Hinn 29. júní 2010 eru 30 ár liðin frá því að Íslendingar voru til fyrirmyndar með því að vera fyrstir þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum.

Þann 29. júní er fólk hvatt til að taka þátt í átakinu með því að skrifa bréf sem ber yfirskriftina Takk fyrir að vera til fyrirmyndar. Bréfið má senda til fjölskyldu, vina, vinnustaða, félagasamtaka eða annarra sem bréfritarar telja hafa verið til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. Bréfsefni verður dreift inn á heimili um allt land dagana 29. og 30. júní. Bréfin má setja ófrímerkt í póst.

Vefur átaksins er http://www.tilfyrirmyndar.is/.

Fyrirmyndirnar mínar eru íþróttaálfurinn, Lína langsokkur og Solla Stirða af því að þau eru öll svo sterk!                                                                          (Hrafnhildur Kría Jónasdóttir 5 ára) 

 

 

 

 

 

 

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf